VELKOMIN(N)!
Vertu svo væn(n) að skrifa í gestabókina mína - ég á nefnilega svo hræðilega forvitna mömmu


Um mig:
Þann 28. nóvember 2007 eftir 40v4d meðgöngu skaust Úlfur Stefán í heiminn. Það tók smá stund að fiska hann út. Mamman byrjaði að fá verki sólarhring fyrir fæðingu en það gekk hægt að koma alvöru trukki á útvíkkunina og hríðarnar. Sprenging belgsins hafði engin áhrif og það var ekki fyrr en byrjað var að dæla drippi í kerlu að hlutirnir fóru að gerast. Þá liðu ekki nema 3 1/2 klst þar til drengurinn fæddist - kl 21:16 um kvöldið. Honum tókst þar með að fæðast á afmælisdegi Braga langafa síns og Aprílar Hörpu frænku sinnar.

Núna er drengurinn byrjaður á vöggustofunni Kollegiegården í kóngsins Kaupmannahöfn og er mjög brosmildur og glaður ungur maður.




Þú ert gestur nr. 2376